LEYFISSAMNINGUR NOTANDA

Síðast uppfærður: 2025-02

MIKILVÆGT:

ÁÐUR EN ÞÚ NOTAR HUGBÚNAÐINN SKALTU LESA ÞENNAN LEYFISSAMNING NOTANDA (EULA) MEÐ ÞVÍ AÐ NOTA HUGBÚNAÐINN SAMÞYKKIRÐU AÐ VERA BUNDIN(N) AF SKILMÁLUM ÞESSA LEYFISSAMNINGS, SÉRSTAKLEGA HVAÐ VARÐAR TAKMARKANIR Á ÁBYRGÐ. EF ÞÚ SAMÞYKKIR EKKI SKILMÁLA ÞESSA LEYFISSAMNINGS MÁTTU EKKI NOTA HUGBÚNAÐINN.


Þessi leyfissamningur er lagalegur samningur milli (i) þín og allra aðila sem þú ert í forsvari fyrir (ef einhverjir) (saman „þú“) og (ii) Sony Corporation („SONY“). Þessi leyfissamningur kveður á um réttindi þín og skyldur varðandi hugbúnað vöru frá SONY og/eða utanaðkomandi leyfisveitendum þess (þar með talið, en ekki takmarkað við, hlutdeildarfélög SONY) og viðeigandi hlutdeildarfélögum þeirra (saman „UTANAÐKOMANDI BIRGJAR“), ásamt öllum uppfærslum, öllum prentuðum eða rafrænum fylgiskjölum fyrir slíkan hugbúnaða og öllum gagnaskrám, sem veitt eru af SONY eða UTANAÐKOMANDI BIRGJUNUM í gegnum umbúðir vörunnar, vefsvæði SONY eða með öðrum hætti á netinu, eða búin til með rekstri slíks hugbúnaðar (saman „HUGBÚNAÐURINN“).


Burtséð frá ofangreindu skal um allan hugbúnað í HUGBÚNAÐINUM sem hefur aðskilinn leyfissamning notanda (þar með talið, en ekki takmarkað við, GNU almennt opinbert leyfi og Lesser/Library almennt opinbert leyfi) gilda slíkur viðeigandi og aðskilinn leyfissamningur notanda í stað skilmála þessa leyfissamnings notanda að því marki sem slíkur aðskilinn leyfissamningur notanda krefst þess („UNDANSKILINN HUGBÚNAÐUR“).

HUGBÚNAÐARLEYFI

Þessi HUGBÚNAÐUR er ekki seldur heldur veitt leyfi fyrir honum. HUGBÚNAÐURINN er varinn af höfundarréttarlögum og öðrum hugverkalögum og alþjóðlegum samningum.

HÖFUNDARRÉTTUR

Allur réttur og eignarhald á HUGBÚNAÐINUM (þar með talið, en ekki takmarkað við, allar myndir, ljósmyndir, hreyfimyndir, vídeó, hljóð, tónlist, texti og „forritlingar“ og annað efni sem er hluti af HUGBÚNAÐINUM) liggur hjá SONY eða einum eða fleiri UTANAÐKOMANDI BIRGJUM.

LEYFISVEITING

SONY veitir þér takmarkað, óframseljanlegt leyfi sem veitir ekki einkarétt á að nota HUGBÚNAÐINN eingöngu í tengslum við samhæfa tækið þitt (þar með talið, en ekki takmarkað við, vörur SONY sem HUGBÚNAÐURINN er felldur inn í eða fylgir með) („TÆKI“) eingöngu í samræmi við þennan leyfissamning notanda og notkunarleiðbeiningarnar sem SONY eða UTANAÐKOMANDI BIRGJARNIR kunna að gera þér aðgengilegar. Ef þú ert neytandi er áðurnefnt leyfi eingöngu fyrir þína eigin notkun og heimilisnotkun; ef þú ert fyrirtæki er það eingöngu fyrir þinn innri rekstur. SONY og UTANAÐKOMANDI BIRGJARNIR áskilja sér öll réttindi, eignarhald og hagsmuni (þar með talið, en ekki takmarkað við, allan hugverkarétt) í og á HUGBÚNAÐINUM sem þessi leyfissamningur notanda veitir þér ekki sérstaklega.

KRÖFUR OG TAKMARKANIR

Þú skalt hvorki, né skaltu valda því eða leyfa að einhver utanaðkomandi aðili, geri nokkuð af eftirfarandi:

(1) afrita, birta, aðlaga, endurdreifa, reyna að komast að upprunakóða eða breyta neinu í HUGBÚNAÐINUM, hvort sem er að hluta eða í heild, eða búa til nokkur afleidd verk úr eða af HUGBÚNAÐINUM nema HUGBÚNAÐURINN sé ætlaður til þess að búa til slík afleidd verk;

(2) bakhanna, bakþýða eða baksmala HUGBÚNAÐINN nema að því marki sem ekki er hægt að banna slíkt samkvæmt gildandi lögum;

(3) breyta eða eiga við einhverja virkni sem tengist stjórnun stafrænna réttinda í HUGBÚNAÐINUM;

(4) fara fram hjá, breyta, sigrast á eða fara í kringum einhverja virkni eða varnir í HUGBÚNAÐINUM eða einhver kerfi sem tengjast stjórnun HUGBÚNAÐARINS;

(5) trufla eðlilega virkni HUGBÚNAÐARINS með því að setja óhóflegt álag á þjóninn eða með öðrum hætti;

(6) innleiða í, eða senda í gegnum HUGBÚNAÐINN einhverja tölvuvírusa eða annan skaðlegan kóða, skrár eða leiðbeiningar;

(7) aðskilja einhvern stakan hluta HUGBÚNAÐARINS til að nota hann á fleiri en einu TÆKI nema SONY hafi veitt fyrir því skýrt leyfi;

(8) fjarlægja, breyta, hylja eða afskræma einhver vörumerki eða tilkynningar á HUGBÚNAÐINUM;

(9) deila, dreifa, leigja, lána, veita undirleyfi fyrir, úthluta, flytja eða selja HUGBÚNAÐINN;

(10) nota HUGBÚNAÐINN í tengslum við brot á lögum, reglugerðum, dómsúrskurðum eða öðrum lagalega bindandi ráðstöfunum opinbers yfirvalds eða opinberrar stefnu, eða brot á réttindum eða lagalega vörðum hagsmunum (þar með talið, en ekki takmarkað við, hugverkaréttindi og önnur eignarréttindi, réttindi til viðskiptaleyndarmála, heiðurs og einkalífs) SONY, hvers UTANAÐKOMANDI BIRGIS, eða einhverra utanaðkomandi aðila;

(11) nota HUGBÚNAÐINN með einhverjum hætti eða í einhverjum tilgangi sem er ekki í samræmi við þennan leyfissamning notanda.

UNDANSKILINNN HUGBÚNAÐUR OG ÞÆTTIR MEÐ OPNUM HUGBÚNAÐI

Burtséð frá áðurnefndri veitingu takmarkaðs leyfis staðfestir þú að HUGBÚNAÐURINN kann að innihalda UNDANSKILINN HUGBÚNAÐ. Um tiltekinn UNDANSKILINN HUGBÚNAÐ kunna að gilda leyfi opins hugbúnaðar („ÞÆTTIR MEÐ OPNUM HUGBÚNAÐI“), sem þýðir að öll hugbúnaðarleyfi sem eru samþykkt sem opin leyfi af Open Source Initiative eða önnur álíka leyfi, þar með talið en ekki takmarkað við leyfi sem, sem skilyrði dreifingar á hugbúnaðinum sem leyfi er veitt fyrir samkvæmt slíku leyfi, krefjast þess að dreifingaraðilinn geri hugbúnaðinn tiltækan á frumkóðasniði. Ef og að því marki sem birtingar er krafist skaltu fara á oss.sony.net/Products/Linux eða á annað vefsvæði sem SONY tilgreinir til að finna lista yfir viðeigandi ÞÆTTI MEÐ OPNUM HUGBÚNAÐI sem eru hluti af HUGBÚNAÐINUM á hverjum tíma, og viðeigandi skilmála og skilyrði sem gilda um notkun hans. Slíkum skilmálum og skilyrðum kann að vera breytt af viðkomandi utanaðkomandi aðila hvenær sem er án þess að skaðabótaskylda myndist gagnvart þér. Að því marki sem leyfin sem gilda um UNDANSKILINN HUGBÚNAÐ krefjast þess gilda skilmálar slíkra leyfa í stað skilmála þessa leyfissamnings notanda. Að því marki sem skilmálar leyfanna sem gilda um UNDANSKILINN HUGBÚNAÐ banna einhverjar takmarkananna í þessum leyfissamningi notanda hvað varðar slíkan UNDANSKILINN HUGBÚNAÐ munu slíkar takmarkanir ekki gilda um slíkan UNDANSKILINN HUGBÚNAÐ. Að því marki sem skilmálar leyfanna sem gilda um ÞÆTTI MEÐ OPNUM HUGBÚNAÐI krefjast þess að SONY bjóðist til að afhenda frumkóða í tengslum við HUGBÚNAÐINN er það hér með boðið.

NOTKUN HUGBÚNAÐAR MEÐ HÖFUNDARRÉTTARVÖRÐU EFNI

Mögulegt er að þú getir notað HUGBÚNAÐINN til að skoða, geyma, vinna úr og/eða nota efni sem búið er til af þér og/eða utanaðkomandi aðilum. Slíkt efni kann að vera varið af höfundarrétti, öðrum hugverkalögum og/eða samningum. Þú samþykkir að nota HUGBÚNAÐINN eingöngu í samræmi við öll slík lög og samninga sem gilda um slíkt efni. Þú staðfestir og samþykkir að SONY megi grípa til viðeigandi ráðstafana til að vernda efni sem er geymt, unnið úr eða notað af HUGBÚNAÐINUM. Á meðal slíkra ráðstafana eru, en takmarkast ekki við, að neita að samþykkja beiðni þína um að taka öryggisafrit af og endurheimta efni í gegnum tiltekna eiginleika HUGBÚNAÐARINS, og uppsögn á þessum leyfissamningi notanda ef þú notar HUGBÚNAÐINN með ólögmætum hætti.

EFNI OG ÞJÓNUSTA UTANAÐKOMANDI AÐILA

HAFÐU Í HUGA AÐ HUGBÚNAÐURINN KANN AÐ VERA HANNAÐUR TIL AÐ VERA NOTAÐUR MEÐ EFNI OG/EÐA ÞJÓNUSTU UTANAÐKOMANDI AÐILA. UM NOTKUN Á SLÍKU EFNI OG/EÐA ÞJÓNUSTU KUNNA AÐ GILDA NOTKUNARSKILMÁLAR UTANAÐKOMANDI AÐILA. EF ÞÚ NEITAR AÐ SAMÞYKKJA ÞÁ SKILMÁLA VERÐUR NOTKUN ÞÍN Á HUGBÚNAÐINUM TAKMÖRKUÐ. ÞÚ STAÐFESTIR OG SAMÞYKKIR AÐ TILTEKIÐ EFNI OG ÞJÓNUSTUR SEM TILTÆKAR ERU Í GEGNUM HUGBÚNAÐINN KUNNA AÐ VERA VEITTAR AF UTANAÐKOMANDI AÐILUM SEM SONY STJÓRNAR EKKI MEÐ NEINUM HÆTTI. SONY TEKUR EKKI Á SIG NEINA BÓTASKYLDU VEGNA NEINS SLÍKS EFNIS EÐA ÞJÓNUSTU. EFNI OG/EÐA ÞJÓNUSTUM UTANAÐKOMANDI AÐILA KANN AÐ VERA BREYTT EÐA HÆTT AÐ VEITA ÞÆR HVENÆR SEM ER.

NETTENGING

Þú staðfestir og samþykkir að aðgangur að vissum eiginleikum HUGBÚNAÐARINS kunni að krefjast nettengingar sem þú berð alla ábyrgð á. Enn fremur berð þú alla ábyrgð á að greiða gjöld sem tengjast nettengingu, þar með talið en ekki takmarkað við greiðslu til netþjónustuveitu eða greiðslu notkunargjalda. Notkun á HUGBÚNAÐINUM kann að vera takmörkuð, en það fer eftir getu, bandvídd eða tæknilegum takmörkunum nettengingarinnar þinnar og netþjónustu þinnar. Þú eða sá utanaðkomandi aðili sem veitir slíka þjónustu ber ábyrgð á afhendingu, gæðum og öryggi slíkrar nettengingar.

ÚTFLUTNINGUR OG AÐRAR REGLUR

Þú samþykkir að hlýta öllum viðeigandi takmörkunum og reglugerðum varðandi útflutning og endurútflutning á því svæði eða í því landi þar sem þú hefur búsetu eða notar HUGBÚNAÐINN, og að flytja ekki, eða heimila flutning á, HUGBÚNAÐINUM til neins áfangastaðar, aðila eða einstaklings í bága við nokkrar slíkar takmarkanir eða reglugerðir.

ÁHÆTTUSAMAR AÐGERÐIR

HUGBÚNAÐURINN er ekki gallaþolinn og er ekki hannaður, framleiddur eða ætlaður til notkunar eða endursölu sem beintengdur stjórnbúnaður í hættulegu umhverfi sem krefst bilunarþolinnar framkvæmdar, eins og í rekstri kjarnorkuvera, stjórnun eða samskiptakerfum flugfara, flugumferðarstjórn, rekstri öndunarvéla eða vopnakerfa, þar sem bilun í HUGBÚNAÐINUM gæti leitt til dauða, líkamstjóns eða alvarlegs efnislegs eða umhverfislegs skaða („ÁHÆTTUSAMAR AÐGERÐIR“). Að því marki sem gildandi lög leyfa hafna SONY, allir UTANAÐKOMANDI BIRGJAR, og allir viðeigandi tengdir aðilar sérstaklega allri beinni eða óbeinni ábyrgð, skyldu eða skilyrði um hæfni fyrir ÁHÆTTUSAMAR AÐGERÐIR.

ÚTILOKUN ÁBYRGÐAR Á HUGBÚNAÐI

SUM LÖGSAGNARUMDÆMI LEYFA EKKI ÚTILOKUN ÁBYRGÐA. ÚTILOKANIRNAR SEM SETTAR ERU FRAM NEÐAR Í ÞESSUM HLUTA ERU EKKI ÆTLAÐAR TIL AÐ ÚTILOKA, TAKMARKA EÐA BREYTA LÖGBUNDNUM RÉTTINDUM ÞÍNUM SAMKVÆMT GILDANDI LÖGUM Í ÞÍNU LÖGSAGNARUMDÆMI.


Þú staðfestir og samþykkir að notkun á HUGBÚNAÐINUM er alfarið á þína ábyrgð. HUGBÚNAÐURINN er afhentur "EINS OG HANN ER", án ábyrgðar, skyldu eða skilyrðis af nokkru tagi. SONY OG ALLIR UTANAÐKOMANDI BIRGJARNIR (í þessum hluta skal vísað til SONY og allra UTANAÐKOMANDI BIRGJANNA saman sem „SONY“) HAFNA ÖLLUM ÁBYRGÐUM, SKYLDUM EÐA SKILYRÐUM, BEINUM EÐA ÓBEINUM, ÞAR MEÐ TALIÐ EN EKKI TAKMARKAÐ VIÐ ÓBEINNI ÁBYRGÐ Á SELJANLEIKA, GÆÐUM, NOTAGILDI Í TILTEKNUM TILGANGI, NÁKVÆMNI, RÉTTI OG HELGI EIGNARRÉTTAR. ÁN ÞESS AÐ TAKMARKA ALMENNT GILDI ÞESS SEM ÁÐUR HEFUR VERIÐ NEFNT ÁBYRGIST SONY HVORKI NÉ VEITIR NOKKUR SKILYRÐI EÐA LOFORÐ ÞESS EFNIS (A) AÐ HUGBÚNAÐURINN VERÐI GALLALAUS, ÓTRUFLAÐUR EÐA ÓBREYTTUR, (B) AÐ HUGBÚNAÐURINN VERÐI UPPFÆRÐUR EÐA LEIÐRÉTTUR, (C) AÐ HUGBÚNAÐURINN EINS OG HANN ER NOTAÐUR EINN OG SÉR EÐA ÁSAMT ÖÐRUM TÆKJUM, KERFUM EÐA NETUM VERÐI ALGERLEGA VARINN GAGNVART NETÓGNUM, (D) AÐ EINHVER HUGBÚNAÐUR, EFNI, ÞJÓNUSTUR EÐA VÖRUR (AÐRAR EN HUGBÚNAÐURINN) SEM REKSTUR HUGBÚNAÐARINS TREYSTIR Á VERÐI ÁFRAM Í BOÐI, ÓTRUFLAÐUR EÐA ÓBREYTTUR. ENGAR MUNNLEGAR EÐA SKRIFLEGAR UPPLÝSINGAR EÐA RÁÐ SEM VEITT ERU AF SONY EÐA VIÐURKENNDUM FULLTRÚA SONY SKULU SKAPA ÁBYRGÐ, SKYLDU EÐA SKILYRÐI.

TAKMÖRKUN SKAÐABÓTASKYLDU

SUM LÖGSAGNARUMDÆMI LEYFA EKKI TAKMÖRKUN SKAÐABÓTASKYLDU, ÞANNIG AÐ TAKMARKANIRNAR SEM SETTAR ERU FRAM Í ÞESSUM HLUTA GILDA HUGSANLEGA EKKI UM ÞIG OG ÚTILOKA EKKI, TAKMARKA EÐA BREYTA RÉTTINDUM ÞÍNUM AÐ ÞVÍ MARKI SEM ÞAU GANGA Í BERHÖGG VIÐ GILDANDI LÖG Í ÞÍNU LÖGSAGNARUMDÆMI EÐA TAKMARKA SKAÐABÓTASKYLDU AÐ ÞVÍ MARKI SEM EKKI ER HÆGT AÐ ÚTILOKA HANA SAMKVÆMT GILDANDI LÖGUM.


SONY OG ALLIR UTANAÐKOMANDI BIRGJARNIR (í þessum hluta skal vísað til SONY og allra UTANAÐKOMANDI BIRGJANNA saman sem „SONY“) SKULU EKKI BERA SKAÐABÓTASKYLDU VEGNA NEINS TILFALLANDI, ÓBEINS, SÉRSTAKS EÐA AFLEIDDS TAPS EÐA TJÓNS VEGNA BROTA Á EINHVERRI BEINNI EÐA ÓBEINNI ÁBYRGÐ, SAMNINGSBROTS, VANRÆKSLU, VÍÐTÆKRAR SKAÐABÓTAÁBYRGÐAR EÐA SAMKVÆMT EINHVERJUM ÖÐRUM LAGASKILNINGI SEM VARÐAR HUGBÚNAÐINN, ÞAR MEÐ TALIÐ EN EKKI TAKMARKAÐ VIÐ TJÓN VEGNA TAPS Á HAGNAÐI, TAPS Á TEKJUM, TAPS Á GÖGNUM, TAPS Á NOTKUN Á HUGBÚNAÐINUM EÐA EINHVERJUM TENGDUM VÉLBÚNAÐI, NIÐRITÍMA OG NOTKUNARTÍMA, JAFNVEL ÞÓTT EINHVER ÞEIRRA HAFI FENGIÐ RÁÐGJÖF UM MÖGULEIKANN Á SLÍKU TAPI EÐA TJÓNI. Í ÖLLUM TILFELLUM SKAL SAMEIGINLEG SKAÐABÓTASKYLDA ÞEIRRA UNDIR HVAÐA ÁKVÆÐI ÞESSA LEYFISSAMNINGS NOTANDA SEM ER TAKMARKAST VIÐ ÞÁ UPPHÆÐ SEM VAR RAUNVERULEGA GREIDD FYRIR HUGBÚNAÐINN, ÞÁ VÖRU SONY SEM HUGBÚNAÐURINN ER FELLDUR INN Í EÐA AFHENTUR MEÐ OG/EÐA ÞJÓNUSTU SONY SEM HUGBÚNAÐURINN ER ÆTLAÐUR FYRIR.

Í ÞESSUM HLUTA, EF ÞÚ ERT NEYTANDI Á AÐEINS EFTIRFARANDI VIÐ UM ÞIG:

(A) SONY TEKUR EKKI Á SIG AF SJÁLFSDÁÐUM SKAÐABÓTASKYLDU VEGNA NEINS TAPS EÐA TJÓNS (i) SEM VAR EKKI AF VÖLDUM BROTS SONY Á ÞESSUM LEYFISSAMNINGI NOTANDA; EÐA (ii) SEM VAR EKKI, ÞEGAR ÞÚ SAMÞYKKTIR ÞENNAN LEYFISSAMNING NOTANDA, FYRIRSJÁANLEG AFLEIÐING B BROTS SONY Á ÞESSUM LEYFISSAMNINGI NOTANDA.

(B) EF GALLAÐ STAFRÆNT EFNI SEM SONY HEFUR VEITT SKEMMIR TÆKI EÐA STAFRÆNT EFNI SEM TILHEYRIR ÞÉR OG ÞAÐ ER AF VÖLDUM ÞESS AÐ SONY BEITTI EKKI VIÐEIGANDI KUNNÁTTU OG VANDVIRKNI MUN SONY ANNAÐHVORT GERA VIÐ ÞAÐ SEM SKEMMDIST EÐA GREIÐA ÞÉR BÆTUR. SONY BER AFTUR Á MÓTI EKKI SKAÐABÓTAÁBYRGÐ VEGNA SKEMMDA SEM ÞÚ HEFÐIR GETAÐ FORÐAST MEÐ ÞVÍ AÐ FYLGJA RÁÐUM SONY UM AÐ SETJA UPP UPPFÆRSLU SEM ÞÉR VAR BOÐIN ÁN GREIÐSLU EÐA VEGNA SKEMMDA SEM VARÐ AF VÖLDUM ÞESS AÐ ÞÚ FYLGDIR EKKI UPPSETNINGARLEIÐBEININGUM RÉTT EÐA UPPFYLLTIR EKKI LÁGMARKSKERFISKRÖFUR SEM SONY RÁÐLAGÐI.

EIGINLEIKI SJÁLFVIRKRAR UPPFÆRSLU

Öðru hverju kunna SONY eða UTANAÐKOMANDI BIRGJARNIR að sjálfkrafa uppfæra eða með öðrum hætti breyta HUGBÚNAÐINUM til þess að bæta öryggiseiginleika, leiðrétta villur eða bæta virkni, á þeim tíma sem þú átt samskipti við þjóna SONY eða utanaðkomandi birgja, eða með öðrum hætti. SONY kann að skilyrða áframhaldandi notkun á HUGBÚNAÐINUM við það að þú ljúkir uppsetningu á eða samþykkir slíka uppfærslu eða breytingar. Þú berð alla ábyrgð á öllum afleiðingum þess að nota ekki nýjustu útgáfuna af HUGBÚNAÐINUM sem SONY hefur gert þér aðgengilega. Allar uppfærslur/breytingar skulu teljast vera, og skulu vera hluti af HUGBÚNAÐINUM með tilliti til þessa leyfissamnings notanda.

SAMNINGURINN Í HEILD, AFSAL, GILDAR OG ÓGILDAR GREINAR

Þessi leyfissamningur notanda (og gildandi persónuverndarstefna SONY sem þér er afhent sér, ef einhver er), með síðari tíma breytingum, felur í sér allan samninginn milli þín og SONY með tilliti til HUGBÚNAÐARINS. Ef SONY nýtir sér ekki einhvern rétt eða ákvæði í þessum leyfissamningi notanda skal ekki líta á það sem afsal slíks réttar eða ákvæðis. Ef einhver hluti þessa leyfissamnings notanda reynist ógildur, ólöglegur eða óframfylgjanlegur skal því ákvæði framfylgt að því marki sem það er hægt til þess að viðhalda ásetningi þessa leyfissamnings notanda, og aðrir hluta halda fullu gildi sínu.

GILDANDI LÖG OG LÖGSAGNARUMDÆMI

Sáttmáli Sameinuðu þjóðanna um samninga er varða alþjóðlega sölu varnings skal ekki gilda um þennan leyfissamning notanda. Um þennan leyfissamning notanda skulu gilda ensk lög, nema að því marki sem Evrópulög eða innlend lög í því landi þar sem HUGBÚNAÐURINN var veittur eða keyptur kveða á um annað (þar sem þú hefur komist yfir HUGBÚNAÐINN sem neytandi). Allur ágreiningur sem rís vegna þessa leyfissamning notanda skal heyra undir lögsögu enskra dómstóla eða þess Evrópulands þar sem þú hefur búsetu.

SANNGJÖRN ÚRRÆÐI

Burtséð frá öllu í þessum leyfissamningi notanda sem kveður á um annað, staðfestir þú og samþykkir að öll brot þín á þessum leyfissamningi notanda eða ef þú ferð ekki eftir honum mun valda SONY óbætanlegum skaða, sem peningalegar skaðabætur væru ófullnægjandi fyrir, og þú samþykkir að SONY megi leita allra lögbannsúrræða eða sanngjarna úrræða sem SONY telur nauðsynleg eða viðeigandi í slíkum aðstæðum. SONY kann einnig að grípa til hvaða lagalegu eða tæknilegu úrræða sem er til að koma í veg fyrir brot á og/eða framfylgja þessum leyfissamningi notanda, þar með talið en ekki takmarkað við með tafarlausri stöðvun á notkun þinni á HUGBÚNAÐINUM, ef SONY telur einhliða að þú sért að brjóta gegn eða hyggist brjóta gegn þessum leyfissamningi notanda. Þessi úrræði eru viðbót við önnur lagaleg eða samningsbundin úrræði sem SONY kann að hafa.

UPPSÖGN

Án þess að það hafi áhrif á nokkur önnur réttindi þess kann SONY að segja upp þessum leyfissamningi notanda ef þú ferð ekki eftir einhverjum skilmálum hans. Ef um slíka uppsögn er að ræða verður þú: (i) hætta allri notkun á, og eyða öllum afritum, af HUGBÚNAÐINUM; (ii) fara eftir skilyrðunum í hlutanum fyrir neðan sem heitir „Reikningsskyldur þínar“.

BREYTINGAR

SONY ÁSKILUR SÉR RÉTT TIL AÐ BREYTA ÖLLUM SKILMÁLUM ÞESSA LEYFISSAMNINGS NOTANDA EINHLIÐA MEÐ ÞVÍ AÐ BIRTA TILKYNNINGU Á VEFSVÆÐI SEM SONY TILGREINIR, MEÐ TILKYNNINGU Í TÖLVUPÓSTI Á NETFANG SEM ÞÚ GEFUR UPP, MEÐ ÞVÍ AÐ BIRTA TILKYNNINGU SEM HLUTI AF ÞVÍ FERLI ÞAR SEM ÞÚ FÆRÐ UPPFÆRSLUR EÐA MEÐ EINHVERJUM ÖÐRUM LAGALEGUM VIÐURKENNDUM HÆTTI. Ef þú samþykkir ekki breytinguna ættirðu strax að hafa samband við SONY og fá leiðbeiningar. Áframhaldandi notkun þín á HUGBÚNAÐINUM eftir gildistöku slíkrar tilkynningar telst vera samþykki þitt fyrir því að vera bundin(n) af slíkri breytingu.

UTANAÐKOMANDI VIÐTAKENDUR

Hver UTANAÐKOMANDI BIRGIR skal teljast vera utanaðkomandi viðtakandi, og skal hafa rétt til að framfylgja hverju ákvæði þessa leyfissamnings notanda með tilliti til hugbúnaðar slíks aðila.

REIKNINGSSKYLDUR ÞÍNAR

Ef þú skilar TÆKINU á sölustað sinn, selur eða með öðrum hætti flytur TÆKIÐ þitt, eða ef þessum leyfissamningi notanda er sagt upp, berð þú ábyrgð á og verður, ef það er mögulegt, að fjarlægja HUGBÚNAÐINNN úr TÆKINU og eyða öllum reikningum sem þú kannt að hafa stofnað í TÆKINU eða sem eru aðgengilegir í gegnum HUGBÚNAÐINN. Þú berð alla ábyrgð á að viðhalda trúnaði allra reikninga sem þú ert með hjá SONY eða utanaðkomandi aðilum og allra notandanafna og aðgangsorða sem tengjast notkun þinni á TÆKINU.


Ef þú hefur einhverjar spurningar um þennan leyfissamning notanda geturðu haft samband við SONY með því að senda bréf til SONY á viðeigandi heimilisfang fyrir hvert svæði eða land.